Eing og margir ..Ingunn Elfa Gunnarsdottir

Jæja .. held að ég ætli bara að gera eins og margir og taka smá pásu á þessu bloggi .. veit ekki hvort ég kem eitthvað aftur .. mér finnst ég bara vera of upptekin til að vera að þessu .. svo þess á milli gleymi ég þessu bara .. þannig að þeir sem vilja .. fylgjast með á heimasíðum barnanna ..
Kveðja
Ingunn Elfa

Aðfangardagur !!!Ingunn Elfa Gunnarsdottir

Óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Jólakveðja
Ingunn, Gísli & börn

Logið .. eða eitthvað þannig ..Ingunn Elfa Gunnarsdottir

Jæja loksins loksins .. vegna mikils þrýstings frá Láru þá verð ég nú að henda inn eins og einni færslu .. verð að viðurkenna að ég er rosa lélegur bloggari ..
En jæja það sem gerist hjá mér þessa daga er bara að dagarnir líða eins og elding .. held ég sé rosalega að missa af þessum tíma .. en æji held ég verði bara að hætta að væla yfir þessu og halda mínu striki í ritgerðinni .. reyni svona að vinna í henni 3-4 tíma á dag .. svona veltur á því hversu mikið JSG sefur .. Fór í skólann síðasta föstudag .. og audda er þetta síðasta sem ég þarf að analísa að taka anskotans mikinn tíma .. fór tvær fýluferðir þar sem í annað skiptið vorum við 4 tíma að koma græjunni í gang .. nota bene hún er frá 1985 og því aldeilis komin til ára sinna .. og þá ákv hún að bila .. og varð að skipta um prentar og eitthvað ves .. þannig að hinn daginn mætti mín rosa spennt .. eða hitt þó .. og jú þá dó harði diskurinn og þurfti að panta nýja tölvu .. en jæja allaveganna á föstudaginn virkaði þetta .. en vá hvað þetta er mikið ves .. þarf að láta vatnið í svona lítil glös .. alveg eins og í CSI .. og inn í græjuna og kemur út úr prentaranum .. en nei þá er það ekki búið .. þá þarf ég að fara inn í forritið og leiðrétta kúrfuna til að fá rétta hlutfallið á efnunum .. ég meina halló hvað er það .. getur hún ekki bara komið rétt út í fyrsta skiptið ..
En allaveganna .. skólinn aside .. þá gengur þetta fínt bara .. Hallgrímur svona á fullu að leika við vini sína um helgar .. Jóhanna að læra eitthvað nýtt alla daga .. lærði til dæmis að ulla í dag .. var kannski í tengslum við hóstann .. svo er hún líka með sýkingu í augunum .. nóg að gera hérna .. Gísli líka á fullu í skólanum .. fór í skólann að læra bæði í dag og í gær .. nóg að gera þar .. reyna að klára allt áður en farið verður heim 15. desember ..
En það er rosa mórall að myndast hérna í þessu litla íslendingafélagi í Horsens .. ákveðin atvik eru að gerast í tengslum við eina eða jú tvær persónur í stjórn félagsins .. sem leiddi svo til að önnur sagði af sér .. alveg eins og gerist í Svíþjóð :P .. spurning hvort hún fái uppsagnarsamning .. hehe .. nei þar sem stjórnin á engan pening þá stórefa ég það .. finnst rosa leiðinlegt að þau hafa ekki efna á því að fá Gumma Jóns til að spila .. því þetta á svo eftir að standa undir sér .. og ég meina þetta er akkurat atburður sem fólk er sama um að borga inn á .. ekki inn á skólabarinn !!!! Það eru allir að tala um þetta og nenni ég ekki að segja neitt meira sem Anna og stelpurnar eru búnar að segja á hennar síðu .. og sem kemur frá á síðu íslendingafélagsins .. audda þurfum við að einbeita okkur að einhverju öðru en okkur sjálfum .. fyndið það sem einn sagði á www.ifhorsens.dk að jólastressið væri komið snemma :P ..
Mömmuklúbburinn var með litlu jólin síðasta fimmtudagskvöld .. þá mættu bara mömmurnar og með lítinn pakka með sér .. þetta var æðislegur tími .. og frábært að vera svona í fullorðins félagsskap og ekkert að pæla í börnunum .. takk æðislega fyrir þessa frábæru stund stelpur !!!!
En jæja þetta er nóg í bili .. kannski hendi inn fleiri færslum .. lofa samt engu .. sérstaklega þar sem ég "hef ekki tíma" til að hringja í Völu :( .. vona að henni líði betur *knús og kossar til hennar* .. en ég var svo á því í dag að hringja í þig .. en þið verðið að fá ykkur heimasíma !!!! :P (ein ógeðslega nýsk hehe )
Bæjó í bili ..

Nýja húsið ..Ingunn Elfa Gunnarsdottir

Jæja þá er mar kominn heim úr haustfríinu .. veit ekki hvort má kalla þessa ferð til fjár .. hehe .. en jú þetta var skondið og í leiðinni frekar pirrandi .. en mar fór heim með ákveðin plön og það snérist í 360 gráður og svo aftur til baka 270 gráður .. þannig að endirinn var 165 fm parhús á Selfossi .. alveg fyrir hliðina á Suðurlækjarskóla .. þannig að Hallgrímur minn þarf að fara yfir eina götu og þá kominn í skólann .. svo fékk Gísli vinnu hjá Verkfræðistofu Suðurlands .. þannig að það var rosa fínt .. svo veit ég eiginlega ekki neitt með mig .. jú gat fengið vinnu hjá Línuhönnun ... taddararda .. á Kárahnúkum ;) .. þannig að það var ekki beint draumastarfið .. svo fór ég í viðtal hjá Hönnun og vonum að það gangi eftir .. var eiginlega ekki alveg að ná því hvort ég væri með vinnu eða ekki .. þori eiginlega ekki að taka neitt sjálfsagt .. sögðu þar að næsta skref í stöðunni væri að skoða þetta betur hjá þeim .. væru að sameinast 2 öðrum fyrirtækjum og gæti tekið tíma .. ég allaveganna tók því þannig að þau væru að finna hvar væri best að geyma mig :D .. en æji vona bara að það gangi eftir .. svo er Hönnun náttla með útibú á Selfossi .. sem er audda miðja alheimsins núna :D
En núna tekur bara við að læra og læra .. er búin að vera að baslast við einn kafla í ritgerðinni minn .. og ákv bara í dag að fresta þeim pakka .. þannig að þegar ég fór að pæla í einhverju öðru þá fór þetta að gerast ..
En jæja best aðf ara að horfa á Gilmore girls :D

Herfilegur bloggari :(Ingunn Elfa Gunnarsdottir

Jæja þá er afmælispartýshelgin að baki og bara að taka við ný vinnuvika .. vá ég er farin að tala eins og hann Gísli minn og segja að ég sé að vinna þegar ég er í skólanum .. hehe .. allaveganna þá er planið hjá okkur Gísla orðið þannig núna að ég fer í skólann á miðvikudögum og föstudögum .. þurftum að koma á svona föstu skipulagi því það er önnur gella í skólanum sem er einnig að vinna á rannsóknarstofunni og þurfti að nota sömu tæki og ég .. þannig að þar sem Gísli minn er í skólanum fram að hádegi þessa daga þá ákv við að þetta yrðu þeir dagar svo hann missi líka sem minnst úr skólanum ..
En já analísan mín gengur ágætlega, er búin að filtera sýnin mín og svo greina úr þeim Na jónina .. lenti í smá vandræðum með sýnið sem ég tók úr Jökulárslóni á Sólheimasandi, því það er í tengslum við sjóin og flæðir eins sjór inn í lónið eins og jökulvatn út í sjó .. og tækið ætlaði bara að "springa" út af þessu magni af Na .. en þetta gekk upp á endanum .. Þá er það bara næst að mæla leiðni .. svo pH .. og svo hinar jónirnar .. ég var alltaf með planið að vera búin í enda september .. það var audda í vor þegar ég vissi ekkert hvað ég var að fara að gera .. svo núna hef ég alltaf sagt að ég verð ánægð ef ég klára í enda október .. en ég er að sjá það að það verði ekki fyrr en í nóvember .. bæði þar sem daninn er svo hrikalega ligeglad og bara líður áfram .. ekkert að gera eins mest á þeim stutta tíma sem ég hef .. bara eyða mínum tíma í rugla .. og svo líka audda er haustfríið í viku 42 og þá er skólinn audda lokaður .. greyjið Ingunn .. En jæja verð þá bara að vera dugleg að skrifa eins mikið og ég get þess á milli svo að ég eigi BARA eftir sem minnst af þeim skrifum þegar ég er búin að analísa prufurnar og geti farið í að túlka þetta allt saman ..
En jæja ég ákvað á föstudaginn að senda nokkra emaila á fyrirtæki heima og athuga með atvinnumöguleika .. og fékk svo til baka frá nokkrum .. og þar meðal var frá Línuhönnun .. þar sem mig langar MEST að vinna .. ok fékk fyrst email sem sagði að þau ætluðu að athuga þetta í næstu viku og hafa svo samband .. en svo fékk ég email frá þeim aftur í gær .. nota bene Laugardagur :S .. og sagði að þau vildu fá mig í viðtal og hvort ég væri á leiðinni heim á klakann .. ég varð nú bara nett montin af þessum áhuga .. samt ekkert að gera mér of miklar vonir .. en núna erum við þá að velta því fyrir okkur að fara heim í viku 42 .. as in haustfríinu .. fyndið hvað þetta með fríið er búið að snúast heil og hálfan hring .. fyrst átti audda að fara heim .. nei svo ákváðum við þar sem við erum að flytja heim á næsta ári að nota tækifærið og keyra um í Noregi og Svíþjóð .. svo æji vorum við bara ekki að nenna því .. ætluðum bara að hanga hérna heima og kannski dobbla mömmu og pabba til að koma í heimsókn .. svo er mamma að vinna og vinna í skólanum líka .. jæja þá var bara planið að vera ein hérna .. kannski spila eitthvað með Völu og co .. en svo núna er planið að fara heim .. æji enda verður Hallgrímur að hitta pabba sinn og Völu svona áður en litla barnið kemur í heiminn ..

En jæja best að fara að njóta þess að þynnkan er farin .. bið að heilsa öllum þarna heima .. og takk fyrir afmæliskveðjurnar ..

IEG

Rolling Stones !!!Ingunn Elfa Gunnarsdottir

Jæja ég ætti þá kannski að dratta einhverju út úr mér hérna .. Vala og co komu í helgarferð til Horsens um síðustu helgi og var það frábær tími .. alltaf gaman að fá þau í heimsókn. Tilgangurinn var utan við að hittast að Hallgrímur átti afmæli og var bjóð á laugardaginn, svo voru Rolling Stones í Horsens á sunnudaginn. Þannig að það var mikið plan þessa helgi. Afmælið gekk vel, komu margir og gaman að hitta fólkið .. þakka öllum fyrir sem komu og þakka líka fyrir soninn .. hitinn var rosalegur og var valla líft í eldhúsinu þar sem ég var með ofninn í gangi að hita brauðréttinn .. svo var audda ekki hægt að hafa opna gluggana þar sem það er svo rosalega mikið af geitungum hérna fyrir utan .. btw mig dreymdi í nótt að geitungur hafi stungið mig .. hvað þýðir það ?? .. Svo eftir afmælið fórum við Vala smá rúnt og kíktum á Stones snekkjuna og svo á stroget að fá okkur bjór og kók :Þ .. svo á sunnudagskvöldinu var tekinn göngutúr út að forum og þannig “farið” á tónleikana .. þetta var geggjað gaman .. gaman að sjá þá svona í SÍÐASTA sinn .. ekki seinna vænna þar sem þetta voru síðustu tónleikarnir .. svo náðum við Vala að “smygla” okkur inn á svæðið og kaupa boli .. eða svo héldum við .. þetta var víst bara opið svæði með grindverki á einni hlið .. og audda vorum við þar og héldum að við værum rosa glæpamenn .. Hallgrímur minn sofnaði liggur við standandi .. eiginlega bara á grasinu við fæturnar á okkur .. enda orðinn svo stór að hann bara sat á grasinu og fylgdist með öllum ljósunum .. þá voru góð ráð dýr og burðarúmið í vagninum var tekið upp (og við það vaknaði Jóhanna og ætlaði sko ekkert að fara að sofa aftur .. hún var sko þokkalega að fýla sig á tónleikunum) .. Hallgrímur var settur svo í vagninn og burðarúmið ofan á .. var hellíti fyndið að sjá bara svona fætur koma niður :D .. set inn mynd þegar ég verð búin að fá mér nýjan kortalesara :S .. svo enduðu tónleikarnir með satisfaction .. geggjað stuð !!! svo var bara labbað heim .. ásamt 85 þús öðrum .. og fengið sér ís svona fyrir háttinn .. morguninn eftir sagði Hallgrímur “ég bara man ekkert hvernig ég komst heim” .. hehe .. eins og algjör fyllibitta .. Núna er ég bara að dúlla mér þar til kassarnir mínir koma með Samskip .. skilst að skipið eigi að landa í Árósum á föstudagskvöldið .. þannig að ég get væntanlega náð í draslið á mánudaginn .. er með frekar mikið samviskubit .. er ekki að læra neitt .. enda get ég það ekki .. allar bækurnar og greinarnar og ALLT skóladótið er með skipinu :SÞannig að ég er rosa dugleg að eyða tímanum í allt og ekkert .. er að njóta þess í botn að vera með Jóhönnu .. reyna að njóta tímans áður en ég þarf að fara í skólann .. en jæja ætla að fara og horfa á imbann áður en hún vaknar :D Heyrumst betur ..

Afmæli á morgun ..Ingunn Elfa Gunnarsdottir

Hæ hó ..
þá er ég á fullu að reyna að baka afmælisköku fyrir afmælið hans Hallgríms sem verður á morgun þar sem Rolling Stones er á sunnudaginn (fyrir þá sem ekki vita þá á Hallgrímur afmæli á sunnudaginn) .. ekki það að laugardagurinn hafi líka verið óhentugur .. stelpugolfmót og pikknik hjá Íslendingafélaginu :S En já hún Jóhanna er rosa dugleg að reyna að hjálpa mér að pikka hérna .. alltaf gott að hafa hjálp .. en já svo eru Vala og co að koma með lestinni á eftir og ætla að vera fram á mánudag og koma með okkur í Stones göngutúr .. held að þetta verði rosa gaman .. en já ætlaði bara rétt að henda inn nokkrum orðum á meðan ég bíð eftir að kakan er til í ofninum og þvottavélin verði búin ..
Btw þá eru komnar inn nýjar myndir hjá BÁÐUM börnunum !!!
IEG

Klukkan

Auglýsing

Heim um jólin 2006

Könnun

Var orðið tímabært á breytingar ???

Leit

Leikur dagsins